3.5.2007 | 22:18
Líbídó
Án ástar, ekkert líf - án átaka, enginn þroski. Þessi tvö öfl, meðbyr-mótbyr, sem svo oft takast á, eru líklega forsendur lífsins.
Ástin er í upprunalegu merkingunni afl lífsins, "já-ið", lífs- og kynhvötin, afl gleðinnar, hins góða, jákvæða, frjóa, uppbyggilega - líbídó.
Hið gagnstæða er afl dauðans, "nei-ið", dauðahvötin, afl hins neikvæða, illa, eyðileggingar.
Að bera jákvæðar tilfinningar til annarrar manneskju og finna hið sterka uppbyggilega afl beinast að henni er forsenda þroskaðra tengsla. Þetta ber í sér aðdráttarafl - andlegt og tilfinningalegt, líkamlegt og kynferðislegt.
Ég vona að þetta jákvæða eigi við um flesta...ég allavega vorkenni því fólki sem finnur þetta ekki.
Ég væri til í að geta lesið hugsanir í einn dag, en bara einn dag
Hvað finnst ykkur?
Athugasemdir
Þetta er nokk fræðileg skilgreining hjá Freud á hugtakinu ást og kannski lítið rómantísk.
En ég held að það fari ekkert framhjá manni þegar maður er eða verður ástfanginn. . . . ekkert síður en ef maður skyldi hata e-ð eða e-rn . . .hvorutveggja yfirþyrmandi tilfinningar . . . önnur öllu betri en hin.
áNik
ásgeirNikulás (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 00:43
Nei það fer örugglega ekki framhjá manni! Ég hef samt verið rosalega hrifin af strák....alveg þannig að mér leið bara illa. Ég þoli ekki að hafa ekki stjórn á því hvernig mér líður.
Þannig að það er spurning....er þetta ást eða bara þráhyggja! Það eru mjög margir bara með mikla þráhyggju þegar kemur að þessum málum og uppgvöta svo að þetta var bara loft
Klara, 4.5.2007 kl. 11:42
Já það er GLATAÐ að vera í þráhyggju og halda að maður sé ástfanginn, það er líka ömurlegt að fatta það ári seinna þegar maður loksins losar sig við fíflið
En ég veit hvað sönn ást er og ég fattaði það bara þegar hún birtist.
Það er samt svo erfitt að útskýra þetta, miklu erfiðara en að útskýra hatur
en þegar ég fann ástina þá var ég í fyrsta skipti tilbúin til að aðlaga mig honum!! Það er kraftaverk útaf fyrir sig. Ég skal segja þér frá þessu öllu yfir bolla ef þú vilt, ætla ekki að fara að vera meira væmin hér....
Maður verður að halda kúlinu, heyrumst sæta
Beggan :) (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 15:05
Það má líka túlka ástina öðruvísi.. þú náttúrulega berð mikla ást til Ásdísar Birnu og jákvæðar tilfinningar. Þarf ekki endilega að vera eitthver gaur :)
alda maria (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 08:28
Já að sjálfsögðu....ég ber algerlega skilyrðislausa ást til Ásdísar Birnu...og það er eina örugga ástin sem til er það er ástin til barnanna okkar og náttlega líka þeirra til manns sjálfan. Enda finnst mér það svo sjálfsagt og alls ekkert flókið.
En já Begga ég er sko alveg til í bolla með þér...endilega...:)
Klara, 7.5.2007 kl. 11:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.